Stjórn Skaga hefur tekið ákvörðun um að nýta kauprétt á alls 14,1% hlut í Íslenskum verðbréfum hf. („félagið“) af minnihlutaeigendum félagsins, sbr. tilkynningu Skaga þann 16. desember 2024. Kaupverðið reiknast út frá því að heildarvirði hluta sé 1,5% af eignum í stýringu félagsins þann 31. desember 2025. Gert er ráð fyrir að seljendur hlutanna fái kaupverðið greitt með 24.231.800 nýjum hlutum í Skaga sem lúta sölubanni til tveggja ára. Fjöldi hluta er reiknaður út frá meðalgengi hlutabréfa Skaga eins og það er skráð á aðalmarkaði Nasdaq Iceland síðustu 10 viðskiptadaga fyrir dagsetningu tilkynningar. Greiðsla í formi hlutabréfa er gerð með fyrirvara um samþykki hluthafa fyrir útgáfu nýs hlutafjár í Skaga til að mæta kaupverðinu, en jafnframt er heimild til uppgjörs í reiðufé. Tillaga um hlutafjáraukningu vegna kaupanna verður sett fram með fundarboði aðalfundar ásamt kynningu og helstu upplýsingum. Í kjölfar uppgjörs viðskiptanna verður Skagi eigandi alls hlutafjár í Íslenskum verðbréfum.
Read more at globenewswire.com
Nasdaq
华尔街日报